MÁLGLÖÐ MEÐ MEIRU...





<< July 2008 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



July 29, 2008
Á feeerðalagi...

Já nú er ferðalag framundan... Styttist í að við förum "hringinn" eins og gamla daga. Við ættum að geta upplifað ágætis nostalgíu því að við förum með mömmu og pabba, sitjum aftur í og hlustum á mömmu og pabba þylja upp úr vegahandbókinni :)

Mamma segir að hún hafi ekki viljað taka sénsinn með mig og Lárus og hafi því ákveðið að fara með okkur í ferðalag yfir verzlunarmannahelgina - svona til að tryggja að við færum okkur ekki að voða á einhverri skelfilegri útihátíðinni. Mér þykja þetta hins vegar óþarfa áhyggjur hjá henni þar sem fyrsta og eina útihátíðin sem ég fór á  - endaði ekki betur en svo að ég hringdi skælandi heim á laugardagskveldi og bað mömmu vinsamlegast að kaupa far fyrir mig heim frá Eyjum... sem hún gerði by the way EKKI.

En við leggjum af stað á föstudaginn og höldum í austurátt. Ætlum að koma við á Giljum í Fljótshlíðinni og gera tilraun til að láta mömmu verða skotna í kettlingnum Míu. Síðan verður  austurlandið kannað og áð í  Höfn í Hornarfirði um kvöldið. Daginn eftir verður síðan lagt í'ann áleiðis til Kárahnjúka - ýmislegt skoðað á leiðinni (mamma er með planið). Um kvöldið er áætlað að renna inn í Vopnafjörð þar sem sýna á Lárusi æskuslóðirnar, Vígdísarklett, sundlaugina og fleira spennandi. Á leiðinni heim er nauðsynlegt að skoða Dettifoss, Ásbyrgi og fleiri fallega staði.

Hlakka til að skoða landið mitt, koma á Vopnó aftur og njóta þess að vera á ferðalagi...   

 

 


Posted at 19:37 by evahardar

 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments




Previous Entry Home Next Entry