Þar sem ég er frekar fastheldin og íhaldssöm (er einhver ósammála?) þá ætla ég að flytja mig og blogga á www.evahardar.blogspot.com framvegis. Bæði styður Mac-inn minn ekki blogdrive og ég get gert frekar takmarkaða hluti hérna og síðan er ég að fíla blogspot betur eftir að ég lærði aðeins á það. Vona að þeir sem hafa lesið hérna sýni þessu ótrúlega ístöðuleysi mínu skilning.
Er búin að vera hérna frá því 13. janúar 2004 sem í mínum augum er töluvert langur tími. Ég renndi aðeins í gegnum bloggin og réttast væri að copy-a þetta allt saman og geyma. Enda er margft sem ég hristi hausinn yfir núna og margt sem ég var löngu búin að gleyma og þótti gaman að rifja upp. Fyrsta færslan mín var svo hljóðandi:
Þetta er Hildur! Fyrsta myndin sem ég birti er af Hildi þar sem hún á kærasta sem hjálpaði mér alveg rosa (eða eiginlega bara gerði allt) til að gera þessa síðu svona líka fína. Svo er Hildur líka handleggsbrotin :(
Ekki mjög löng færsla og myndin er ekki lengur til - en það hefur heldur betur margt vatn runnið til sjávar síðan 13. janúar 2004. Hildur sem var þennan dag einstaklega súr yfir því að vera handleggsbrotin og yfir því að búa í Kaupmannahöfn er nú óhandleggsbrotin og hin ánægð með að búa í Kaupmannahöfn (og líka mjög svo ánægð að ég búi núna í Kaupmannahöfn). Hildur á orðið litla fallega stelpu - með sama kærastanum og hjálpaði mér að búa til þetta blogg. Hann hjálpar mér ennþá með tölvumálin mín (hann og Viðar skipta með sér verkum) ;) En núna verður það evahardar.blogspot.com - vona að þið sem lásuð hér lesi þar.