Entry: Hringurinn August 7, 2008



Austfirðirnir voru undurfagrir. Spegilsléttir firðirnir skörtuðu sínu fegursta - litlir og sjarmerandi bæir þar sem lífið gengur hægt og rólega fyrir sig. Mér finnst til dæmis Djúpivogur alveg einstaklega fallegur. Heimsóttum Diddu frænku á Egilsstaði. Hún er 93 ára og ca 130 cm á hæð. Hún mokar snjóinn úr innkeyrslunni allan veturinn og bónar bílinn sinn alla daga (keyrir hann samt aldrei).

Kárahnjúkastíflan er stór og fjöllin á Íslandi falleg - sérstaklega Herðubreið! Mikið var síðan huggulegt að koma aftur inn á Vopnó, hitta ættingja og vini og baða sig í Selárlauginni. Á heimleiðinni hættum við okkur inn að Dettifossi og röltum um í Ásbyrgi. Tókum myndir og dáðumst að náttúruvættunum. Fengum gott að borða hjá Gunnu frænku á Akureyri og hristumst síðan Kjöl heim.

Yndislegt!

Um helgina verðum við síðan þess heiðurs aðnjótandi að fá að heimsækja Reykhólasveitina fyrir vestan. Við fáum gisti hjá Júlíu frænku - verðandi skólastjóra Reykhólaskóla... jeminn hvað það er virðulegt! Planið er að skemmta sér fram á rauða nótt í brúðkaupi Stebba og Hrefnu.

Brottför er síðan eins og flestir orðið vita á þriðjudaginn næsta. Þannig að það er víst að sunnudagur og mánudagur fara í að snúast í ansi marga hringi, undirbúa og pakka enda hefur lítið farið fyrir slíkri skipulagningu síðustu daga.

Síðan okkar www.sattogsannad.blogspot.com verður sem áður upplýsingaveita fyrir það sem drífur á daga okkar erlendis.

   1 comments

Bryndís
August 10, 2008   10:41 AM PDT
 
Góða ferð og gangi ykkur vel.

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments